"Sá sem vill læra finnur allsstaðar skóla." Al. Pope

10.09.2007 20:13:28 / irran

KOMBAKK

It’s alive!!! 

 

Já, ég er enn á lífi – þrátt fyrir þráláta fjarveru frá bloggheimum í sumar. Nú er haustið að skella á og óhjákvæmilega stend ég mig að því að hverfa að tölvunni öðru hvoru á kvöldinn þó að enginn sé lærdómurinn...maður er ekkert nema vaninn.  

Annars hefur auðvitað slatti gerst síðan síðast, enda var síðasta bloggið mitt um miðjan júní, rétt eftir spennufall eftir námslok, utanlandsferð og gott útskriftarpartý. Erum bara búin að hafa það þokkalegt í sumar fjölskyldan, reyndar hefur verið voða mikið að gera í vinnu hjá okkur og lítið varð af golfsumrinu mikla sem ég ætlaði mér að eiga.  

Ég missti meira að segja af meistaramótinu vegna ógeðslegrar ælupestar sem entist mér í 2-3 daga með öllu...jakk. Er búin að taka þátt í heilum átta mótum í sumar sem er nú ekki mikið en er búin að næla mér í nokkur verðalun sem er bara fínt. Gerði góða ferð á Vesturlandsmót kvenna 1. september á Akranesi og var þá ekki búin að spila golf síðan á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina. Nældi mér sem sagt í fern verðlaun á Skaganum, var í 2. sæti í höggleiknum um Vesturlandsmeistara kvenna, 2. sæti í mínum flokki í punktakeppninni, var í sigursveit Mostra (en Mostri var að vinna bikarinn í 9. skipti af þeim 13 sem mótið hefur verið haldið;) og fékk nándarverðlaun á 18. braut. Tók svo þátt í Hótel Stykkishólmur opið núna um helgina og nældi mér í 3. verðlaun bæði með og án forgjafar og þar af leiðandi gistingu á Hótel Stykkishólmi fyrir tvo með morgunverði og 6.000 krónu gjafabréf í Hole In One. Kem vonandi bara sterk inn í golfið á næsta ári og geri þá vonandi tilraun til að lækka mig eitthvað í forgjöf.  

Við (ég, Högni og Ellen) fórum sem sagt á unglingalandsmót eins og vanalega og var það bara rosa stuð eins og alltaf. Sunna eyddi  helginni í vinnu og að passa hundana. Ellen og þeim gekk bara vel, þær urðu landsmótsmeistarar í körfunni, í 3.-4. sæti í boðhlaupinu en töpuðu öllu í fótboltanum. Allt gekk bara vel þá helgi, við tókum nokkra daga í þetta og lögðum af stað á þriðjudegi fyrir mót með Ástu, Rabba og börnum og var bara voða gaman hjá okkur.  

Við héldum svo upp á Danska daga eins og vanalega líka – en tókum voða lítinn þátt samt þetta árið. Ég var í fjáröflun með Ellenar bekk fyrir Danmerkurferðina og vorum við hjónin í hliðinu upp frá og Högni var annars í vinnu mest alla helgina. Mamma kom til okkar á fimmtudegi og Tinna og Einar á föstudegi. Kíktum í götugrill í rúman einn og hálfan tíma á föstudeginum og svo vorum við bara heima um kvöldið. Ég rúllaði svo með mömmu upp á Skaga seinnipartinn á laugardaginn þar sem kellan var bara lögð inn með pensillín í æð vegna skæðrar bakteríusýkingar og lá hún þar alveg fram á fimmtudag en hefur nú öll braggast síðan þá ;=)  Ellen tók loforð af mér þessa helgi um að á næsta ári yrði ég ekki í neinni nefnd eða neitt svona kjaftæði og karlinn stefnir á að vera í sumarfríi og við ætlum á Danska daga árið 2008!  

Ég náði svo þeim merka áfanga að ná 35 ára aldrinum 23. ágúst við mikla gleði mín og annarra heimilismanna – byrjar ekki stuðið hjá manni upp úr þessum aldri, manni er sagt það allavega svo nú get ég bara látið mig hlakka til að eiga fjörug og lífleg ár framundan;=) 

Ellen fór svo til Danmerkur 25. ágúst með bekknum sínum og var í heila viku og gekk bara vel og var rosa gaman – svo gaman að hún er að reyna að kría út úr okkur leyfi til að fara aftur bráðum...! 

Sunna varð svo 17 ára föstudaginn 7. september og bíður nú spennt eftir því að taka bílprófið þann sautjánda. Skrítið að það séu komin 17 ár síðan maður var að baksa við að koma greyinu í heiminn á Landspítalanum... og líka svo skemmtilega skrítið að hún sé orðin sautján og við foreldrarnir rétt að ná tvítugsaldrinum...hehe...allavega ung í anda! Þær voru svo báðar í höfuðborginni um síðustu helgi og við hjónin því ein í kotinu laugardag og sunnudag, svoldið skrítið en mjög huggó að geta farið að sofa þegar maður vildi á laugardagskvöldi í staðinn fyrir að vaka eftir ungviðinu frameftir kvöldi.  

Ég vaknaði líka á fyrra fallinu á sunnudaginn og skellti mér út að hlaupa með hundana í tæpan klukkutíma – frekar dugleg. Er annars búin að vera að djöflast í ræktinni í 9 vikur – þar sem við Ásta byrjuðum einhvern tímann í sumar á því að mæta 6.30 mán-mið-fös og byrjuðum svo í einkaþjálfun hjá Róberti fyrir tveimur vikum, en við tvær og Gyða og ætlum að klára fjórar vikur. Byrjum mán-mið-fös kl. 5.45 þannig að maður er bara kominn á fætur fyrir hálf sex þrjá daga vikunnar og búin að djöflast og sturta sig rúmlega sjö. Þetta er bara yndislegt, formið að koma hægt og bítandi og líkaminn svona aðeins að hrökkva í gang aftur eftir smáááá hvíld. Svo er maður líka svo afkastamikill í vinnunni þegar maður hreyfir sig svona á morgnana – sem er bara gott.  

Annars er ég bara upptekin af því þessa dagana að njóta þess að vera BARA í vinnu og engum skóla. Hafa tíma til að gera ekki neitt á helgum, fara í ræktina, sund, lesa, glápa á imbann eða hvað sem er... Ég er líka búin að elda jafn oft heitan mat á síðustu tveimur vikum og ég gerði allan síðasta vetur liggur við. Frábært að klára að vinna, dúlla sér í búðina, dúlla sér heim og setja yfir matinn, fá sér kaffibolla í rólegheitum, sofna yfir fréttunum eða whatever. Yndislegt líf – mæli með því að fólk skelli sér í skóla við tækifæri því maður metur stundirnar sínar miklu betur þegar maður fær aftur að njóta þeirra á sinn hátt;=) Er t.d. þessa dagana með sjöundu bókina um Harry Potter á náttborðinu en ég pantaði hana á amazon þegar hún kom út í sumar og ætla mér að vera búin með hana þegar hún kemur út á íslensku.  

En jæja, þetta er nú barasta orðið lengsta blogg sem ég hef bloggað held ég... spurning hvort að þeir sem hafa þolinmæði til að lesa allt geri mér greiða og kommenti á blessaðan pistilinn... bara svona svo ég viti hvort að þetta sé án tilgangs eða ekki... ??? Set pennann niður (eða tek puttana af lyklaborðinu) í bili og sé ykkur bráðum aftur klár á kantinum.  

Kv. Íris 

P.S. Bíða ekki allir spenntir eftir því að karfan hefjist fyrir alvöru???   


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 21:51:48 / irran

Ísland, Ný vinna, Útskrift;-)

Langt frá síðasta bloggi og alveg slatti búinn að gerast síðan þá. Síðast var ég ennþá stödd á Benidorm en nú er það bara blessað ekki sumarið á Íslandi sem er raunin... Nei, nei, segi svona-veðrið er nú barasta búið að vera ágætt hér og ekkert undan því að kvarta.

Við komum sem sagt hingað vestur heim á leið frá Benidorm um hálf fimm aðfaranótt 1. júní. Ég var svo mætt í nýja vinnu um níuleytið morguninn eftir. Það er búið að vera nóg að gera, fullt af hlutum til að læra og bara gaman og leggst þetta bara mjög vel í mig.

Á síðasta föstudag brunuðum við fjölskyldan svo norður á Akureyri þar sem við Gyða mættum á æfingu fyrir útskrift kl. 19.00 í íþróttahöll Akureyrar. Ég, Högni, Sunna, Ellen, Mamma, Tinna og Haukur fórum svo út að borða eftir að við vorum búin að æfa og koma okkur fyrir í gistiheimilinu. Fórum á La Vita e Bella og gæddum okkur á dýrindis mat og fórum svo bara á gistiheimilið og vorum í rólegheitunum.

Laugardagurinn hófst svo á frágangi á gistiheimilinu og svo var skundað í sund og dressið og allur pakkinn tekinn með þangað. Gerðum okkur til í sundinu og röltum svo yfir í íþróttahöllina um tíuleytið þar sem Háskólahátíð Háskólans á Akureyri átti að hefjast kl. 10.30.

Þetta gekk barasta alveg eins og í sögu. Athöfnin var ekki of löng, enginn missteig sig á sviðinu, rektorinn og forseti Íslands töluðu ekki of lengi og þetta var bara æði. 372 kandidatar voru útskrifaðir, þar af 299 konur og 73 karlar. 315 kandidatar voru á staðnum.

Um leið og ég gekk út úr höllinni eftir athöfnina þá biðu Högni og Gyða þar (ég hljóp nebbla að pissa) ásamt forsetanum sem Högni greip á útleiðinni og plataði hann í myndatöku. Við byrjuðum sem sagt daginn á því að fá mynd af okkur með Forseta Íslands! Ekki slæmt það.

Svo var skundað yfir í Stefánslund í myndatöku með hópinn. Þar var öllum 315 kandidötunum komið fyrir á palli einum frekar stórum og skellt af myndum í tugatali.

 

Ég náði að nappa rektorinn að aflokinni myndatöku (enda hann harðgiftur inn í Borgarættina;=) ) og fengum við Gyða myndir af okkur með honum líka.

 

Högni tók alveg slatta af myndum þarna og í heildina held ég að hafi verið teknar um 1.000 myndir þessa helgi!!! Geri aðrir betur-ég stóðst bara ekki að skella nokkrum hér inn en mikið fleiri má svo finna á www.123.is/irran og nokkrar á www.myspace.com/irishuldsig

"Litla skólastelpan" með Barpababba bitaboxið sem gjöfin frá mömmu, tinnu & co og Jökli & co var í - húmor hjá systkinum mínum vegna þess að mér fannst Barbapabbi alltaf svo skemmtilegur í sjónvarpinu þegar ég var yngri-Tinna man allt svona;=)

Sætu frændsystkinin, Ellen, Haukur og Sunna

Pabbi, ég og mamma

Við rúlluðum svo til Emmu "frænku", skiptum um föt og rúlluðum heim. Vorum komin vestur um hálf sjö, kláruðum að gera partýið klárt og svo hófst bara fjörið um áttaleytið þegar fyrstu gestirnir komu.

Kvöldið og helgin öll var bara yndislegt í alla staði. Tæplega fjörutíu manns mættu í partý, þar sem veitinga og góðra veiga var notið, flott undirspil (þar sem Jónatan mætti með rafmagnsorgel og magnara), hrottalegur söngur og mikið stuð langt fram eftir nóttu - þar sem ótrúlegasta fólk endaði á trampólininu við mikinn fögnuð allra hinna sem ekki létu vaða:haha: Ég hoppaði allavega nógu mikið til að vera með harðsperrur í rassinum daginn eftir...:lol:

Ég fékk fullt góðra gjafa og vil bara þakka öllum fyrir að koma og taka þátt í helginni með okkur og gera þetta ógleymanlegt. Þakka kærlega fyrir mig og díses hvað ég hlakka til að halda næsta partý. Spurning hvað maður gerir á 35 ára afmælinu í ágúst...hmmmmmmm...

En allavega... þá eru komnar maaaaargar myndir inn á www.123.is/irran og sjálfsagt fleiri á leiðinni, bæði frá partýinu og Benidorm...

Vona að þetta dugi í bili, fyrir ykkur sem eruð búin að vera óþolinmóð að bíða eftir uppdeiti og myndum;)

Held svo áfram að setja inn myndir þ.e.a.s. ef tölvan mín hættir að hrynja endalaust

Enn og aftur kveðjur og takk fyrir allar hamingjuóskirnar;)

Íris Huld (Sophisticated Business Woman...hehe - smá einkasystrahúmor )

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 19:43:41 / irran

No 3 frá Bene...

Styttist í heimferd...

Erum búin ad hafa tad frekar nice hérna. Á laugardaginn fórum vid í fyrsta sinn á strondina. Keyptum vindsaeng og strandmottu og blakbolta og svo var bara legid í sólinni, farid í sjóinn, leikid sér og haft tad hugglegt. Kíktum svo á barinn um kvoldid og fengum skot (voda milt med rjóma) á línuna frá Juan og vid foreldrarnir fengum svo annad til. Vorum svo bara róleg, lásum, horfdum á imbann og hofdum tad huggulegt. Á sunnudaginn vorum vid bara frekar róleg á tví tar sem vid stelpurnar bárum tess merki ad hafa verid á strondinni daginn ádur, vorum ekki svo mikid í sólinni en samt smá.

Á mánudaginn (í gaer) fórum vid svo í Aqualandia og tad var sko stud. Ég fór meira ad segja í risarennibrautir og allt saman med henni Ellen. Fórum oll í slatta af vatnadóti og var bara svaka stud.

Í dag átti svo ad vera verslunarferd til Alicante og í Nike Outlet en tad var haett vid vegna draemrar tátttoku. Vid skelltum okkur tví bara á eigin vegum. Tókum lestina bara til San Juan og bjorgudum okkur í Outletid. Versludum fyrir vel yfir 400 Evrur tó ad tetta hafi nú ekki stadid undir vaentingum tetta Nike Outlet. En vid stelpurnar erum allavega skóadar fyrir ítróttirnar og meira til:P

Á morgun er svo planid ad vera í rólegheitum og sóla okkur bara. Annad kvold tarf svo ad pakka fyrir heimferd á fimmtudaginn. Lendum svo einhvern tímann eftir midnaetti á fimmtudaginn og keyrum vestur og svo bara nýja vinnan í býtid á fostudaginn;)

Laet tetta duga í bili, tangad til naest. Tad á svo sjalfsagt eftir ad koma slatti af myndum hérna inn tegar vid komum heim. Vid erum allavega búin ad taka um 500 stykki í tad minnsta8|

Hasta Luego

Íris:P


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 18:45:23 / irran

No. 2 ¡ Benidorm

Takk fyrir gódar kvedjur. Ég tek pottthett einhverjar kokteilauppskriftir med mer heim Beta!!!

Sma updeit hedan. Vid erum ennta eins og blom i eggi hérna úti.

Stelpurnar komu a midvikudaginn og fekk eg ad fara med inn i Alicante ad saekja taer a medan strakarnir horfdu a Liverpool tapa urslitaleiknum i Meistaradeildinni. Var ekkert sma glod ad fa stelpurnar og tokum vid strax rolt a strondinni og kiktum a barinn og svona med eldingar i fjarska. Tokum svo rolt i baeinn i gaer med Kristjani Guande Lupa;=) tvi tad var sidasti dagurinn hans, tokum straetó nidur i gamla bae og gengum svo Levante strondina a enda og meira til. Syndum stelpunum svo mollid tegar hopurinn var farinn i gaer og eyddum svo kvoldinu i tad ad spila Kjaftaedi og horfdum a imbann en stelpurnar svafu inni hjá okkur í nótt tratt fyrir ad vera med tetta fina herbergi vid hlidina a okkur, en tad var svona stemmning i tvi og svafum vid bara vel tangad til klukkan vakti okkur i morgun til ad fara i morgunmat.

Tokum svo sma rolt a litla markadinn herna rett hjá. Hogni hitti enska strákinn med galdradótid tannig ad Hogni getur galdrad fyrir Hauk Sindra naest tegar teir hittast;=) Fórum svo beint í Terra Mítica og tad var bara gedveikt skemmtilegt. Ég fór meira ad segja í rússibana med stelpunum og svo vorum vid mest í vatnasledunum og vorum hundblaut tegar vid fórum heim aftur í kvold. Vorum svo bara ad koma úr dinner og aetlum ad hafa tad huggó og sofa út á morgun og fara svo á strondina.

Látum jafnvel heyra frá okkur aftur seinna. Hogni er ennthá svartastur af okkur, thannig ad kannski kem ég bara heim med einn svartan8) Ég er adeins duglegri med vornina, enda med vidkvaemari húd en samt komin med ágaetan lit.

Bid ad heilsa heim í kuldann, hédan úr rúmlega 30 stiga hita;)

Hasta luego,

Íris og fjolsk.


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 14:15:15 / irran

Benidorm blogg no. 1...

Engir islenskir stafir, so sorry...

Erum buin ad vera her i fjóra daga. Komum a midvikudagskvold, thad var klukkutima seinkun a fluginu en thad kom ekki ad sok tvi tad var svo gedveikur medvindur ad vid lentum a rettum tima.

Hotelid er rosa flott og stutt fra strondinni, alltaf nog af bekkjum i sundlaugargardinum tannig ad tetta er bara fint.

Vid erum sko bara buin ad hafa tad huggulegt herna. Soknum samt stelpnanna og bidum spennt eftir ad fa taer hingad a midvikudaginn:D Erum buin ad rolta einu sinni nidur a strond og adeins herna i nagrenninu. Roltum lika i verslunarmidstodina og kiktum adeins i budir, nema hvad.

Forum svo til Altea i gaer med fararstjorunum og nokkrum af oldungunum herna og se eg ekki eftir teirri ferd. Forum til Albir og roltum tadan inn i Altea. Lobbudum alveg helling, skodudum smabatahofnina og svo skildum ég, Hogni og Kristján vid hópinn og lobbudum upp i listamannahverfid i Altea. Thad er svo fallegt tarna ad thad er bara yndislegt. Forum svo heim um trjuleytid tvi strakarnir aetludu ad sja leikinn Man.Utd. vs Chelsea. Eg lagdist bara ut i gard i solbad a medan og klaradi bokina sem eg var ad lesa "Á ég ad gaeta systur minnar?".

A kvoldin hofum vid sest herna nidur a barinn a hotelinu. Thad er alltaf sjov i gangi, misgott reyndar og í gaerkvoldi hlogum vid svoldid mikid ad einu atridinu, en thad var bara gaman.

Hérna borgar sig sko ad thekkja tjonana a barnum og hann Juan Fransisco er ordinn godur felagi okkar, kall á sextugsaldri held ég og ekkert sma hress. Hann ma ekki sja okkur med tóm glos tá baetir hann sko úr tvi. Hann er lika i tvi ad láta mig smakka nýja drykki. Ég er t.d. búin ad smakka Daiquiri, Sangriu, Raudvín med krapa út í, Bjór med krapa út í og svo tegar hann er ad hrista fyrir hinar kerlurnar ta fae ég yfirleitt afganginn í sér glas. Plúsinn vid thetta er ad thad er svona hipsum haps hvort madur faer ad borga eda ekki;) I dag erum vid t.d. ekkert buin ad borga, fengum to kaffi latte, kok, svo bjor út í gard og hann hristir bara hausinn tegar vid tokum upp peninga.... Algjort yndi;)

Vid sporum ferdirnar i skemmtigardana tangad til stelpurnar koma og notum bara timann til ad slaka a og hafa thad huggulegt.

Annars var ég ferlega dugleg í morgun. Sunnudagsmorgun og ég vakna snemma (eins og vanalega thegar ég má sofa), klaeddi mig og rolti mér upp á 19 haed og aetladi í raektina en tá er audvitad lokad á sunnudogum. Ég fór tvi bara út fyrir og hljóp, ekkert smá dugleg, rolti mér svo upp á ansi háa haed hérna rétt hjá, allavega jafn há og 19 haeda byggingin sem herbergid okkar er í, rolti mér svo nidur thadan og hljóp nánast alveg heim á hótel. Var gódan klukkutíma ad thessu og var bara nokkud ánaegd med mig. Hogni var kominn nidur thegar ég kom til baka og vid gerdum okkur klár fyrir sólbad thegar ég var búin í sturtu. Vid syntum svo slatta núna ádan, klaeddum okkur svo og tokum rolt á gula Mid (McDonalds).

En ég laet thetta duga í bili og laet kannski heyra frá mér aftur sídar;)

Kv. Íris (alls ekki jafn brún og Hogni:$ )


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 20:32:22 / irran

Allt að gerast...

Síðasti vinnudagurinn minn í dag. Finnst samt ekkert eins og ég sé hætt í vinnunni. Meira eins og ég sé bara að fara í frí. Víííííi-ég er líka að fara í frí8) Leggjum af stað suður í fyrramálið og förum í loftið 14.35, lendum á Benidorm rúmlega níu þannig að maður ætti að ná að fá sér einn ískaldan einhversstaðar fyrir nóttina. Verð nú sjálfsagt komin með íííískalda hvítvín í hönd á flugvellinum um hádegisbil.

Við erum svona að verða klár. Passarnir klárir, tryggingar í lagi, evrurnar í veskinu, góða skapið komið, búin að kaupa sólarvörn, eftir sól og aloe vera - eigum BARA eftir að pakka. Er búin að vera á fullu við þvotta síðustu daga og nú er bara eftir að skella í töskurnar, þurrka af og ryksuga og þá getum við rúllað.

Högni fór svo með Sunnu í tannréttingaferð til RVK í dag og fékk stúlkan þær gleðifréttir að hún losnar væntanlega við teinana í ágúst og fær þá góm. Þetta er sko bara hálfu ári á undan áætlun og það bara af því að hún er búin að vera ógó dugleg, fyrst að nota beislið og svo teygjurnar og passa sig vel þannig að þetta hefur alveg fluggengið.

Ætla ekki að dvelja lengur við skriftir...kveð bara og læt sjá mig hér aftur bráðum - þó væntanlega ekki fyrr en eftir 31. maí. Byrja svo í nýju vinnunni 1. júní - það verður sko stuð, hellingur af nýju dóti að læra en það verður bara gaman:D

Hasta luego

Íris


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 00:58:36 / irran

ALLT búið ;=)

Jebb. Vörnin frá og gekk bara rosa vel. Var nú ekki eins erfitt og maður hélt að þetta myndi verða. Við fengum bara hrós fyrir sterka kynningu og góðar samræður og vörðumst víst vel. Dómurunum fannst verkefnið okkar metnaðarfullt, krefjandi og gott í heildina litið. Fengum sem sagt bara mjög fína umsögn og betri einkunn en við áttum von á eða 8,5 fyrir lokaverkefnið. Þetta þýðir að ég klára með fyrstu einkunn-sem hefur nú verið markmiðið mitt allan námstímann þannig að brosið hefur varla farið af manni í allan dag:haha:

Ég fékk svo blómasendingu í vinnuna frá mömmu með hamingjuóskum með áfangann-takk mamma ;) Fékk líka blómvönd á síðasta fræðslunefndarfundinum í dag með kveðju og þakklæti fyrir samstarfið á liðnum árum:D

Var ekki búin að vinna fyrr en eftir búðarlokun í dag þannig að við famelían drifum okkur bara á Narfeyrarstofu í snæðing þar sem ég gæddi mér á þorskhnakka og hvítvíni í tilefni dagsins.

Maður er svona aðeins að koma niður á jörðina, rignir yfir mann hamingjuóskum með að hafa lokið þessum áfanga og vil ég þakka fyrir góðan stuðning og fallegar kveðjur m.a. í síðustu kommentum hérna á síðunni;)

Næst á dagskrá er þá bara útskriftin 9. júní á Akureyri. Við stefnum að sjálfsögðu norður famelían og fleiri til. Ef einhver þarna úti getur reddað mér gistingu frá 8.-9. júní þá endilega látið vita sem fyrst:lol: Ég á bara eftir að kanna nánar með tímasetningu á þessu öllu saman og hvort að fjöldatakmarkanir verða á sætum o.s.frv.

Komandi vika fer svo bara í að klára vinnuna, þvo þvotta og þrífa heimilið og gera klárt fyrir ferðina til Benidorm. Viðurkenni  að ég farin að hlakka "smá" til enda rétt rúm vika í það að ég verði mætt með mínum á ströndina...:P

Eins hátt uppi og maður er af gleði, þá þarf maður nú samt sinn svefn þessa dagana og eiginlega nóg af honum þannig að ég býð góða nótt (eða góðan dag) eftir því hvernig þið viljið hafa það.

Bestu bros og hamingjukveðjur héðan:D

Íris (á leið til spánar...8) )

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 10:47:07 / irran

Verkefnið frá og vörnin eftir

 Ekkert varð nú af því að ég bloggaði í lokatörninni um síðustu helgi, gafst bara ekki tími til þess. Vorum fram á nætur í Settunni og létum Vökustaurinn hrella okkur þegar hann kom á vaktina og reif í hurðahúna...hehe. Okkur varð nú samt ekki meint af því, vöknuðum bara vel!

 Mánudagurinn var síðan einn allsherjarsprengur, tölvan mín - sem bæ ðe vei lokaverkefnið var á - tók upp á því að hrynja tvisvar og eftir seinna skiptið flutti ég mig með það á Gyðu tölvu. Svo var lokaverkefnið komið á minniskubb og inn á skrifstofu hjá Stykkishólmspóstinum til að fara í prentun - og þá fraus tölvan þar! Vorum orðnar smá sveittar þegar loks tókst að prenta út allt heila klabbið, hlupum og bundum allt inn, pökkuðum og settum í póst rúmlega hálf fimm en ég var blessunarlega búin að fá nokkurra mínútna frest hjá póstmeistaranum til að koma með pakka. Já, það borgar sig oftar en ekki að búa í litlu samfélagi 8)

 Við Gyða fögnuðum þessum áfanga stuttlega með samstarfsfólkinu mínu í Ráðhúsinu og reifuðum svona það helsta sem kom út úr þessu. Svo var bara rokið í búð, heim að elda og svo var maður bara skotinn í sófanum með þvílíka mígrenikastið að ég hélt ég myndi ekki verða eldri. Við hjónin viðruðum okkur svo um miðnættið með hundana og eftir það fór að rofa til í hausnum á mér - lúrði svo bara til að verða eitt á 1. maí og tók því rólega.

  Við Gyða kynntum svo niðurstöður úr íbúakönnuninni og fyrirtækjakönnuninni fyrir bæjarstjórn, atvinnumálanefnd og stjórn Eflingar á miðvikudagskvöldið og gekk það bara mjög vel. Annars stendur maður sjálfan sig að því að vera hálf feiminn við að sýna öðrum þetta:S Verkefninu lokið og ekkert hægt að eiga við það meir og gerði ég ekki annað á mánudagskvöldið og þriðjudaginn en að hrökkva upp við eitthvað sem við hefðum átt að gera betur eða öðruvísi eða eitthvað. En það þýðir víst ekki að hugsa svona, þetta er búið og gert.

  Vikan er annars bara búin að vera fín hjá okkur. Ég er búin að fara nokkrum sinnum í sund og reyna að fá mér smá lit á kroppinn og viðra nýja bikiníið enda bara tíu dagar í BENE;)

 Fór svo í ræktina í gær og er með harðsperrur dauðans í dag og stefni á að fara og synda aðeins á eftir.

 Við stöllurnar erum svo búnar að vera að undirbúa lokavörnina okkar núna um helgina en vörnin verður í fyrramálið (mánudag) kl. 9.00 í gegnum fjarfund. Þá erum við alveg búnar og við tekur þessi skemmtilega kveljandi bið eftir einkunn8| Ég er nú alveg búin að fara hringinn í þessu, fannst á síðustu helgi að við ættum sko allt hið besta skilið í einkunnagjöf en sú trú hefur alveg hrapað í vikunni yfir þessum vangaveltum um allt sem við hefðum átt að hafa öðruvísi...

 Krossum bara fingur og vonum það besta:haha:

 Ekki það að einkunn sé eitthvað úrslitaatriði. Aðalmálið er auðvitað að verkefnið nýtist bænum á einhvern hátt og það verði hægt að nota það bænum, atvinnulífi og fleiru til framdráttar.

 En ætla að snúa mér að slædupakkanum okkar aftur -   vi ses senere.

 Íris

P.s. kíkið endilega á myndahlekkinn 123.is/irran ef ykkur langar að sjá myndir frá Vatnasafninu...

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 00:31:25 / irran

Fjórir dagar...

...til stefnu.

Tíminn flýgur áfram eins og óð fluga þessa dagana sem er heldur hratt að mínu áliti. Væri svo sem alveg til í smá meiri tíma til að klára blessað lokaverkefnið, finnst svolítið mikið eftir en við eigum jú eftir fjóra daga þannig að ég hef nú svo sem ekki trú á öðru en að þetta takist allt saman.

Verkefnið telur 80 blaðsíður í augnablinu með öllu, eða rúmlega 14.000 orð og eitthvað á eftir að breytast. Ætlum að reyna að senda í yfirlestur um hádegisbil á morgun og vonum svo bara að við fáum góða punkta til að vinna úr á síðustu metrunum.

Við fórum í Flatey á síðustu helgi og unnum þar í verkefninu í friði og ró fjarri skarkala alheimsins. Lögðum af stað með Baldri kl. tvö á föstudaginn og fórum frá borði í Flatey ásamt pari með þrjú börn. Það var svolítið skemmtileg tilviljun að þarna var að koma fólk í tvö hús, við og hitt fólkið, í námsferð og frá sama skóla-svolítið skemmtileg tilviljun en parið er sem sagt nemendur við grunnskóladeild Háskólans á Akureyri.

Þetta var frekar spes, það var svona leiðindaveður á laugardeginum, og ljós í tveimur húsum í gamla þorpinu. Skrítið að horfa út um gluggana á kvöldin þegar skriðið var í koju og allan hringinn var myrkur, rosalega dimmt og ekkert líf að sjá.

Tókum bara með okkur þægilegt nesti sem var ekkert mál að útbúa og Gyða var búin að bóka okkur í kvöldmat í Læknishúsi á laugardeginum. Sátum allan daginn og unnum á fullu, fórum ekki úr húsi fyrr en við fengum símtal um sjöleytið og kall í kvöldmat. Borðaði þar heimagerð bjúgu í fyrsta skipti ásamt lambakjöti og tilheyrandi meðlæti og grjónagraut í desert. Máltíð sem gaf manni fullt af orku til að halda áfram að vinna enda hættum við ekki fyrr en að verða eitt þá um kvöldið. Unnum svo fram til fjögur á sunnudeginum, tíndum saman, kíktum í kaffi í Læknishús á meðan við biðum eftir bátnum. Nýi Baldur er enga stund að skutlast með mann á milli þannig að maður á kannski eftir að skella sér í kaffi til Gyðu einhvern tímann í sumar...8)

Okkur vannst bara frekar vel, unnum myndir og niðurstöður í sambandi við einstaklingskönnunina sem við gerðum og erum svo búnar að vera að hnoða saman fyrirtækjaupplýsingum auk þess að baxa við fræðilega hlutann-fín mynd komin á þetta en vantar svona lokahnykkinn.

Á mánudaginn, 30. apríl, eigum við sem sagt að skila fimm eintökum af verkefninu og einu á tölvutæku formi þannig að dagurinn fer væntanlega í það að láta prenta og binda inn þessi eintök og koma þessu í póst. Þá tekur við undirbúningur fyrir vörnina sem fer væntanlega fram föstudaginn 4. eða mánudaginn 7. maí og þegar hún er afstaðin þá erum við bara búnar;=) Skrítin tilhugsun, það verður að segjast en þetta verður yndislegt.

Leyfi ykkur kannski að fylgjast með framvindu mála næstu daga - þ.e.a.s. ef ég gef mér bloggtíma.

Heilsur í bili,

Íris

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 14:03:18 / irran

Það er komið sumar, sól í heiði skín...

Gleðilegt sumar kæru lesendur nær og fjær8)

Byrja á því að óska Jökli bróðir og Jónatani mági mínum innilega til hamingju með daginn í dag en þeir eiga báðir afmæli, Jökull 22 ára og Jónatan 32 ára. Er nú samt búin að hringja í þá líka svona í tilefni dagsins og senda sumarkveðjur suður til Reykjavíkur í leiðinni.

Sit annars hér í Settunni við verkefnavinnu. Dagarnir líða hratt sem aldrei fyrr þessa dagana, 11 dagar í dag þangað til við eigum að skila og því mikilvægt að halda vel á spöðunum þessa síðustu daga. Annars stefnum við stöllur á Flatey um helgina til að komast í burt frá skarkala alheimsins og ná góðri einbeitingu og vonandi miklum afköstum. Vona að það gangi eftir hjá okkur!

Annars bara lítið títt. Rúlluðum reyndar til Reykjavíkur í dagrenningu á mánudaginn með Sunnu í tannréttingar og enduðum þann dag á leik Fjölnis og Snæfells í 2. deild kvenna en þetta var síðasti leikur stelpnanna í vetur, þær töpuðu leiknum 86-68 minnir mig sem þýddi það að Fjölnisstúlkur fara upp í 1. deild að ári og Snæfell endaði í 3. sæti í annarri deildinni sem má teljast frábær árangur hjá þeim stúlkunum sem eru held ég allar að spila í fyrsta sinn í meistaraflokki í vetur.

Högni fór svo á vorkvöld Golfklúbbsins í gærkvöldi og fékk bingó í fyrsta skipti á ævinni og það tvisvar sama kvöldið! Kom sem sagt heim með golfkúlur, golfbol og 30 skipta sundkort fyrir fullorðna.

Jæja, það er varla skynsamlegt að hanga lengi á netinu þegar maður á að vera að einbeita sér að öðrum hlutum og pistillinn því í styttra lagi í þetta sinn-verð bara öflugri næst.

Vona bara að þið eigið góðan dag í dag og fagnið sumri með viðeigandi hætti en ekki eins og ég, innilokuð í sólinni:cry:

L8eiter,

Íris


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 15:22:51 / irran

Þoli ekki þessar ritvillur hjá moggafólki...

Hvað er vitlaust við eftirfarandi frétt:

Innlent | mbl.is | 12.4.2007 | 07:00

Tekin fyrir ölvunar- og hraðakstur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvo ökumenn í nótt sem óku undir áhrifum áfengis. Í öðrum tilfellinu var rétt rúmlega tvítug stúlka tekin drukkin undir stýri sem mældist aka á 109 km hraða á Nýbýlavegi um kl. tvö í nótt, en þar er hámarkshraði 50 km á klst. ????

Veit ekki um ykkur en mér finnst allt of algengt að það sjáist fáránlegar ritvillur í fréttum á Mbl.is sem eru svo oft leiðréttar seinna sama dag-yfirleitt eftir að einhver moggabloggari er búinn að blogga um viðkomandi vitleysu. Ekki það að þetta sé eitthvað stórvægilegt í þetta sinn-mér lá þetta bara á hjarta.

Ekki þar fyrir utan að mér virðist þetta vera algjör endaleysa hve oft lögreglan er að taka fólk fyrir ölvunar- og hraðakstur! Ætlar fólk aldrei að læra?

Rakst á annað á mbl.is svona af því að ég er svo stjörnulega þenkjandi þessa dagana:

MeyjaMeyja: Þú ert algjörlega einbeittur á að komast í gegnum pappírsstaflann á skrifborðinu þínu. En þar sem þú ert einn þeirra fáu sem njóta þeirrar vinnu skaltu bara brosa og njóta þess í botn! "
Já, þetta er sem sagt bara eintóm gleði. Ef ég væri ekki að drepast í kjálkunum, eyrunum og full af kvefi þá myndi ég jafnvel bara brosa yfir þessu. Það er reyndar jákvætt að það er hætt að fljóta úr augunum á mér, þannig að þetta hlýtur að vera að koma-eða fara þ.e.a.s. kvefið;)
Blessuð lokaritgerðin mjakast-held að hún telji tæpar 70 blaðsíður hjá okkur núna með öllu og sjálfsagt slatti sem á eftir að bætast við. Vona að við náum að senda eintakið eins og það er núna til leiðbeinandans í kvöld til yfirlestrar og athugasemda. Vona líka að þetta sé allt á réttri leið hjá okkur.
Blessað formið mjakast ekki eins vel að mínu mati. Ef ég hefði fengið borgað fyrir að borða um páskana þá væri ég rík kona í dag:evil: Er annars búin að hreyfa mig aðeins í vikunni, fór í ræktina á þriðjudaginn til að reyna að svita út á mér þetta kvef-það tókst ekki.
Páskarnir voru annars fínir, fórum á ball á föstudaginn hjónin og skemmtum okkur vel eins og ávallt. Fórum líka í partý og komum heim undir morgun. Mamma kom svo á laugardaginn og fór á sunnudagskvöld. Höfðum það bara náðugt, ég reyndi að vinna í verkefninu en tölvan mín var nú ekki alveg á sama máli og hrundi trekk í trekk með þeim skemmtilegu afleiðingum að ég tapaði elveg endalaust af vinnu. Tók svo bakkupp á sunnudaginn-þá hrundi hún, afritaði lokaverkefnið og allt sem því tengist á flakkarann-það gekk. Hún er svo blessunarlega búin að vera í lagi þessa vikuna að mestu leyti.
Annars eru bara 18 dagar í skil og þá kemur maður aftur "til byggða" þ.e.a.s. þá verður lífið svona líkara því sem það var fyrir skóla. Þannig að kæra fjölskylda og vinir-beware því nú losnið þið ekki við mig, ég verð alltaf heima eða alltaf í heimsókn-eða þá að maður slái þessu bara upp í kæruleysi og verði bara alltaf í golfi og sundi í sumar...hver veit. Sjálfsagt best að taka bara blöndu af þessu öllu, reyna að ná vinahópnum saman í eitt eða tvö grill í sumar-eitthvað sem tókst ALDREI í fyrra.
Vona bara að þetta sumar verði í lagi veðurfarslega og þá verður þetta bara yndislegt.
En, mín kæru-ætla að fá mér nefsprey og beiskan.
Kveð að sinni,
Íris

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 17:02:43 / irran

Gleðilega páskahátíð

Jæja. Erfið vika maður. Er varla búin að ná mér eftir tapleikinn á mánudaginn, díses hvað maður var eftir sig... En nú er að bíta í skjaldarrendur og taka þetta í kvöld í Vesturbænum. Við fjölskyldan stefnum bara á Fiskana Fimm í einn sveittan borgara þar sem okkar menn töpuðu síðast þegar Högni fór í bæinn en unnu báða sem við horfðum á á Fiskunum.

Í nótt dreymdi mig líka þennan fína draum sem ég vona að sé annað hvort fyrir sigri í kvöld eða lottóvinningi á laugardaginn. Draumurinn innihélt m.a. mitt eigið sveinbarn í fæðingu, talsvert af hægðum og mikið af snjó í fjöllum þar sem ég fór mikinn á skíðum!!! Hvað segja draumaspekúlantar um þetta?

Fór svo í ræktina í morgun og svo í sund með kallinum, lá þangað til að blessuð sólin sýndi sig og klukkutíma betur!!! Eins gott að fara að æfa sig að liggja í sólbaði þar sem Benidorm verður tekið með trompi 16. maí nk. Annars merkilegt hvað flýgur í gegnum huga manns í ræktinni. Ég má varla stíga á hlaupabretti án þess að hugsa um einhverja klaufalega tilburði eða klúður... um leið og ég er komin upp fyir 9,5 kílómetra hraða á klukkustund þá er ég farin að ímynda mér að ég flæki fæturna á einhvern mjög furðulegan hátt og endi á því að detta kylliflöt og fljúga út af brettinu, og í þokkabót jafnvel að brjóta tönn eða næla mér í glóðarauga...! Skil þetta ekki. En hingað til hef ég sloppið tiltölulega heil heim eftir þetta blessaða ræktarbrölt í mér og vona bara að svo verði áfram.

Annars er það bara verkefnið sem á að eiga hug manns allan þessa dagana, eins gott því það styttist óðum í skilin 30. apríl. Mér finnst auðvitað ekki ganga nógu hratt... En oft er sagt að góðir hlutir gerist hægt. Vonandi gilda þau sannindi um verkefnið okkar, þetta mjakast allt hægt og rólega og klárast vonandi í tæka tíð.

Ég er nú líka búin að vera ansi dugleg í átakinu. Keypti mér Boot Camp bók og er svona aðeins að reyna að fara eftir henni svona hægt og rólega. Þannig að formið mjakast líka í rétta átt. Harðsperrur eru alveg að heyra sögunni til og hlutirnir verða sífellt auðveldari, sem er auðvitað bara gott:haha:

Kaupmannahafnarferðin var yndisleg í alla staði. Var samt svolítið þreytt þegar ég kom heim - en það var í lagi. Verslaði smá og skoðaði smá (Nýhöfn og Sívala turninn að meðtöldu Strikinu) og borðaði "smá" og svaf vel og hafði það gott í góðum félagsskap.

Jæja, updeitið búið í bili. Ætla að fara að taka úr vélinni og setja í aðra-vera smá dugleg í dag.

ÁFRAM SNÆFELL!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 23:59:13 / irran

Stjörnuspáin...

MeyjaMeyja:
Láttu vinnuna eiga sig um stund. Það er erfitt þegar þú áorkar miklu, en það hefur jákvæð áhrif. Það verður eins og ýtt sé á takka á þér, orkan fer að flæða.
Ætla að taka mark á þessu. Farin úr landi. Vona að orkan flæði eftir helgi þegar ég verð komin til baka8)
Luv,
Íris

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 23:50:22 / irran

Snjór, snjór og aftur snjór

Pfff...held ég hafi nú verið þokkalega snemma í því að fagna sólinni á síðasta sunnudag því það er búið að snjóa bara flesta daga síðan held ég barasta. Ekkert magn reyndar, sem betur fer því þá þyrfti kallinn minn að fara að moka. Vona að þetta bráðni bara á morgun og hinn í hlýindum og rigningu 8)

Vikan annars búin að vera þokkaleg. Náði að synda báða dagana á síðustu helgi, fékk æðislegan nuddtíma á sunnudaginn og vona að ég fái annan næst þegar nuddarinn verður á ferðinni í apríl. Var svo að vinna til að verða sjö á mánudaginn og hljóp úr vinnunni á fyrstu körfuboltaæfinguna mína í fleiri hundruð og fimmtíu ár. Hljóp aðeins á mig og skipti um föt í karlaklefanum (sem bæ ðe vei var kvennaklefinn tveimur dögum áður) :S en sem betur fer var ekkert alveg vaðandi í körlum þarna þessa stundina þannig að þetta slapp nú allt til og Gulli þurfti að sækja fötin mín í skáp nr. 14 þegar ég var búin í körfu og blaki:lol:

Flest kvöldin hafa annars farið að hluta eða öllu leyti í verkefnið. Héldum svo fyrsta fundinn með vinnuhópnum á miðvikudaginn þar sem við framkvæmdum SVÓT greiningu á bænum í heild og gekk það bara vel, var alveg hissa hvað það kom mikið frá tæplega tuttugu manns. Við Gyða erum svo að dúlla okkur í því að flokka það sem þar kom fram.

Er svo búin að kíkja tvisvar í nýju vinnuna mína í vikunni svona aðeins til að fá nasaþefinn af þessu og líst bara mjög vel á;)

Lítið að frétta annars, reiknum þó með að rúlla í höfuðborgina á sunnudaginn helst því Sunna á tannréttingatíma rúmlega tíu á mánudagsmorgun. Við Gyða stefnum í leiðinni á að kíkja í Þjóðarbókhlöðuna og vesenast aðeins út af verkefninu okkar.

Búin að vera duglegri þessa viku að eltast við blessað formið sem ég er að reyna að komast í. Er sem sagt búin að synda tvisvar, fara á hálfa körfuboltaæfingu og heila blakæfingu. Tók frí vegna anna á þriðjudag og miðvikudag en fór í ræktina á fimmtudag og í dag föstudag. Verð að viðurkenna að ég er með strengi. En það er nú bara af því að hún Sunna mín var að þræla mér út með einhverjum æfingum sem þær stelpurnar eru að gera...pfff. Á nú vonandi eftir að taka þetta svona hægt og rólega og losna smám saman við strengina svona eftir því sem ég verð duglegri að mæta:P

Er annars bara frekar þreytt þessa dagana og get ekki beðið eftir að sá tími komi að maður fái að sofa út um helgi... Finnst eitthvað svo rosalega langt síðan maður gat leyft sér bara að kúra og sofna aftur ef svo bar undir en það hlýtur að styttast í að það verði...

Í þeim töluðu orðum er víst best að hætta að hanga á netinu og fara að drífa sig í koju ef ég ætla að drattast í Settuna klukkan átta í fyrramálið... og á sunnudaginn...

Nótt, nótt snúllurnar mínar

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 09:38:45 / irran

Sól á sunnudagsmorgni

Ég verð nú að segja að það er hreinlega mannbætandi að vakna snemma á svona dögum og koma sér út í fallega veðrið. Held að nokkurra mínútna seta á hafnarsvæðinu eins og það er núna gæti jafnast á við fleiri tíma hjá sálfræðingi. Allavega var ekkert auðvelt að keyra bara beint inn á bílastæðið hér við Settu og hlamma sér beint í skólastól.

Núna finnst manni virkilega að sólin sé farin að hækka á lofti, orðið bjart þegar maður fer á fætur á morgnana og svo er það alveg til að toppa það að koma hérna niður í miðbæ í glampandi sól, hárið bifast ekki á höfðinu og sjórinn spegilsléttur langt út á fjörð. Yndislegt. Vildi óska þess fyrir ykkur sem eruð langt í burtu að blessuð vefmyndavélin væri á sínum stað núna svo þið gætuð upplifað þetta úr fjarska.

Annars hugsaði ég á leiðinni hvort að þetta væri "lognið á undan storminum" því eins og flestir vita þá verður væntanlega allt brjálað í íþróttahúsinu í kvöld þegar Snæfell mætir Skallagrími. Snæfell tapaði með sex stigum fyrir þeim á útivelli og verða því held ég að vinna með sjö stigum til að vera ofar í innbyrðis viðureign liðanna. Við bara vonum það besta - eitt er víst; Ég ætla ekki að láta mig vanta á pallana.

Sunna og félagar í 2. deild kvenna unnu svo góðan sigur á Hamar/Selfoss B í gær. Svolítið brosótt hjá þeim til að byrja með en svo náðu þær ágætis forskoti og héldu því eins lengi og þurfti. Mér persónulega fannst nú alveg hundleiðinlegt að horfa á nýja útlendinginn hjá Hamar/Selfoss aðalliðinu - en hún mátti spila með B liðinu því hún er með svo fáa leiki á bakinu hjá aðal... Einhver norsk stelpa held ég og sú var sko með öll búkhljóð á hreinu ef einhver kom nálægt henni, enda fiskaði hún ófáar villurnar á Snæfellsstúlkur með þessum leikrænu tilburðum sínum, stundi og vældi og kvartaði. Ótrúlegt!!! Var bara þeim mun stoltari af því að stelpurnar skyldu vinna þær.

Vikan hefur svo bara einkennst af þessum gráa hversdagsleika. Vinnudagarnir hafa verið frekar langir, sökum sumarfrísins í vikunni á undan. Kvöldin hafa líka lengst því nú hefur maður ekki allan daginn til að leika sér í lokaverkefninu eins og maður hafði fyrir norðan og notar því kvöldin í verkefnavinnuna.

Fór nú líka í saumaklúbb á þriðjudaginn og svo á leikinn á fimmtudaginn - þannig að það braut nú aðeins upp vikuna.

Erum aftur komnar af stað í verkefninu en lítið vannst í vikunni og byrjuðum við ekki að skrifa aftur fyrr en í gær. Höfum verið í öðrum verkefnum í tengslum við þetta alla vikuna og nú er komið að því að halda áfram að skrifa. Maður er bara orðinn svolítið óþolinmóður að fara að klára þennan fræðilega texta og fara að VINNA eitthvað í þessu, greina öll þessi gögn sem við erum með, framkvæma könnunina og allt það. Erum svo búnar að heyra í fulltrúunum sem við völdum í vinnuhópinn og ætlum að halda fund á miðvikudagskvöldið, þannig að þetta er nú allt að gerast.

Gyða var einmitt að spá í gær hvað þetta er stuttur tími þangað til við verðum búnar að skila og verja og bara lausar við þetta allt saman. Bara ALLT búið. Dem, það verður ekkert smá skrítið.

Þannig að núna er bara að herða sig aðeins og taka á þessu þessa tvo mánuði sem eftir eru og gera þetta almennilega.

Ég ákvað svo að fara að reyna að standa við orðin góðu "Í Form Fyrir Benidorm" og fór og synti í hádeginu í gær þegar ég var búin með morguninn í Settunni og áður en ég fór á leikinn. Drattaðist svo heim eftir leik og tók aðeins til á meðan Högni og Sunna smúluðu Akureyrarferðardrulluna af bílnum fyrst það var þíða. Skemmst er frá því að segja að mín rotaðist svo um sjöleytið í sófanum og svaf til hálf tíu held ég. Sem var nú eins gott því ég gat ekki farið að sofa fyrr en Ellen var komin heim úr barnapíustússinu að verða tvö í nótt.

Vaknaði svo eins og nýsleginn skildingur í morgun kl. 8.40 og dreif mig í Settuna. Ætla að vera frekar dugleg hér frameftir degi, drífa mig svo og synda aftur, svo heim í læri og svo á leikinn.

Til setunnar boðið? Nei! > Áfram í Demantskenningu Michaels Porter og fleiri skemmtilegheit 8)

kv. Íris

 P.S. nýjar myndir á 123.is/irran - úr Tinnu útskrift og svo þessi heljarinnar systkinasjússasyrpa af mér, Tinnu og Jökli...


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Benidorm...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1731 dögum
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
�?štskrift fr�?¡ H�?¡sk�?³lanum �?¡ Akureyri
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1707 dögum